No Rest For The Wicked

20.07.2007 20:05:59 / hugruni

Harry Potter eftir 3 klukkutíma

The time has come. Loksins kemur síðasta Harry Potter bókin út. Ég semsagt geri ekki mikið annað um helgina. Þarf að klára bókina sem fyrst svo enginn geti skemmt fyrir mér endinn. Lofa að segja ekkert hér. Fór á myndina um daginn. Mjög góði náði vel að halda í við bókina miðað við lengd á bók og mynd.

Ekkert merkilegt gerst síðan ég kom heim. Kom heim á sunnudegi, þreif herbergið og gekk frá á mánudeginum fór í atvinnuviðtal á þriðjudeginum og var byrjuð að vinna á miðvikudeginum. Hef ekki gert mikið annað síðan. Þykist kunna eitthvað í bókhaldi. Er semsagt að vinna á skrifstofunni hjá Lyfju. Reyndar bara afleysingar í sumar. Þarf að fara að vinna í því að finna mér eitthvað fyrir veturinn.

Svo voru ég og Dóra rosalega duglegar og skráðum okkur í danspúl hjá JSB. Mjög hressandi, gott að koma sér í smá form. Erum að prófa hvort þetta sé skemmtilegt uppá með að kíkja á eitthvað námskeið í haust. Sakna samt ballettsins ennþá. Mjög erfitt að horfa á So you think you can dance stundum.

Svo er ég að fara á Való reunion um næstu helgi. Gaman að hitta þetta fólk aftur. Hef ekki hitt meirihlutann af þessu fólki síðan maður útskrifaðist.

Ú Simpson er að byrja ætla að hætta núna.

Hugrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 22:55:31 / hugruni

My feet hurt

Ég keypti mér nýja skó, eftir að hafa farið í svona 20 búðir. Pössuðu rosalega vel í búðinni en svo þegar ég fór að labba í þeim fékk ég alveg þvílíkar blöðrur á tærnar. Þetta er alltaf að gerast. Ég virkilega held að lappirnar á mér hafi minnkað en ekki nógu mikið til að komast í næsta skónúmer fyrir neðan. Pirrandi. Og það er ekki sniðugt að vera illt í fótunum þegar fólk er að koma í heimsókn. Því fólk þýðir fullt af labbi.

En jei. Mamma og pabbi koma að sækja mig á morgun. Reyndar betra að hugsa þetta eins og þau séu í fríi og ég bara hitti á að fara heim á sama tíma. Mér finnst eins og ég sé fimm ára þegar ég hugsa um að þau komi að sækja mig. Annars er bara eins gott að þau komi. Mig vantar allt það töskupláss sem þau bjóða upp á. Núna er ég bara með litla flugfreyjutösku, en þau koma með tvær stórar töskur. En það sem allt þetta þýðir er að ég þarf að pakka. Ég hata að pakka og núna þarf ég að koma öllu dótinu mínu fyrir. Er svona aðeins byrjuð að taka hlutina til, þeir eru nett dreifiðir út um allt herbergið, sem er nú ekki allt of stórt.

Býst ekki við að ég eigi eftir að blogga mikið þangað til ég kem heim. þannig ég segi bara, sjáumst eftir helgi :D

Hugrún


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 21:55:16 / hugruni

Ooops I did it again

Fór pínulítið í leikhús einu sinni enn í gær. Var niðri bæ og ætlaði á KFC en það var svo löng röð og ég labbaði fyrir hornið and Lo and behold, var ekki Les Miserables alveg að fara að byrja. Þannig í kíkti inn og keypti mér ódýran miða. Rosa flott sýning. Skil alveg hvernig hún hefur gengið í 20 ár. Var nett pirruð á fólkinu sem sat í kringum mig. Stór hópur af svona 17 ára krökkum. Þau voru ennþá talandi þegar sýningin byrjaði, stelpurnar fyrir framan mig sofnuðu og létu svo eins og þær væru að deyja úr leiðindum. Mig langaði svo að dangla í hausinn á þeim á tímapunkti. Ég meina af hverju að velja svona þungt verk þegar þau hafa augljóslega engann áhuga á því. Ég meina fariði á Avenue Q eða eitthvað. No appreciation for good art.

Ég er geðveikt stolt af sjálfri mér, er búin að kaupa part af afmælisgjöfinni hennar Heiðu, og nei Heiða ég ætla ekki að gefa þér clue. og ég er með hugmynd fyrir afgangnum. Dugleg ég, er svo fáránlega léleg í að velja gjafir handa fólki. Er farið að leiðast soldið, en mamma og pabbi koma eftir viku. Jei. Búin að vera að pæla hvort ég eigi að fara eitthvað en ég á eiginlega ekki pening fyrir því. Hefði verið gaman að kíkja til Parísar eða eitthvað. Var svo að kíkja hvernig maður kemst til Stonehenge. Enginn lest sem fer þangað en það er hægt að kaupa rútuferðir. En það náttúrulega kostar pening líka. Hefði samt verið gaman, heilsdagsferð, Windsor castle, Stonehenge og Bath.

Toodles

Hugrún


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 14:41:49 / hugruni

I'm singing in the rain

Ok reyndar ekki, er að bíða eftir að það hætti að rigna svo ég geti farið út í búð. Ætlaði að fara fyrr en úps ég sofnaði pínulítið. Var vakin frekar snemma í morgun af því að það var verið að þrífa alla glugga í húsinu. I know good reason, Not. Má ég nú sjá, hvað gerði ég skemmtilegt um helgina. Ég fór á pöbbarölt á laugardaginn. Var að segja bless við Tammy (herbergisfélaga) hún var að fara í ferðalag um Evrópu áður en hún fer aftur til Bandaríkjanna. Þá eru báðir Ameríkanarnir farnir. Nadia fór heim fyrir viku síðan. Ég veit að ég verð að minnsta kosti ekki ein á svæðinu þangað til ég fer heim þar sem Claudia verður hérna líka. Semsagt var gærdagurinn bara tekinn rólega. Pínulítið þunn, kom mér loksins frammúr og fór á Subway. Það var of langt að fara á KFC. Eyddi gærkvöldinu í að horfa á The Da Vinci Code og Confetti. Mæli með Confetti fyrir fólk sem fílar Breskan húmor.

Ú I have made a startling discovery. Wait for it... ok ég komst að því að gallabuxur eru bara nokkuð þægilegar ef maður finnur rétta parið. Sem ég hef aldrei haft fyrir því að gera en núna á ég tvenn (tvö?) pör og ég geng varla í öðru. Hef ekki gengið í gallabuxum síðan ég átti smekkbuxur fyrir mörgum, mörgum árum síðan. Sniðugt.

Svo var Heiðdís svo góð að láta mig vita að hún væri að fara á San Fransisco ballettinn í gær en ekki ég og einu upplýsingarnar sem ég fékk var and I quote: Það eru afskaplega myndarlegir bossar í þessari sýningu. Ekki alveg upplýsingarnar sem ég hefði viljað fá. Fékk svo aðeins betri lýsingu. :D

Sniðugt það er hætt að rigna þannig ég ætla að hlaupa út. Endilega ALLIR að kommenta. Makes me feel special. Ú og Dóra næst þegar þú ferð til London þá er risastór Primark komin á Oxford.;)

Hugrún


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 14:23:09 / hugruni

Búin í prófum

Jæja þá er allt skólavesen búið. Ég ætla að líta á tímann sem er eftir sem sumarfríið mitt þar sem ég geri ekki ráð fyrir að gera neitt annað merkilegt í sumar. Fullt af söfnum og svoleiðis sem ég á eftir að kíkja á. Annars hef ég ekki hugmynd um hvað ég á að gera af mér. Bara bíða eftir að mamma og pabbi komi að sækja mig. Ok þetta hljómaði eins og ég væri 6 ára. Vona að það verði gott veður það sem eftir er. Það er búið að vera stannslaus rigning í tvær vikur. Það er orðið svoldið þreytt. Fékk kvef og alltsaman.

En annars ætla að fara og finna mér eitthvað skemmtilegt að gera

Cheerio

Hugrún


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 23:35:02 / hugruni

Lord of the Rings The Musical tada

Ég virðist eiga í smá vandamáli með að geta ekki labbað framhjá leikhúsi án þess að kaupa miða. Var semsagt í prófi í gær og þegar það var búið ákvað ég að fá mér smá labbitúr. Kaupa skartgripagínur handa systrunum. Búðin var loksins opin þegar ég var á staðnum. Svo fór ég framhjá Lord of the Rings leikhúsinu akkúrat þegar það var sýning að byrja og ég ákvað að kíkja hvort það væru lausir ódýrir miðar. Fattaði svo þegar ég var komin inn að þetta var fyrsta skipti sem þetta var sýnt fyrir framan áhorfendur. Varð fyrir pínulitlum vonbrigðum með tónlistina í þessu. Lögin sem voru sungin voru ekkert til að hrópa húrra fyrir en sýningin sjálf og öll umgjörðin í kringum hana var alveg rosalega flott. Geðveikt töff orkar og nazgúlar. Var ekki nógu hrifin af Legolas eða álfunum almennt. Þeir höfðu mjög sérstakar hreifingar sem minntu mann á eðlu. Mjög skritið.

Svo fékk ég að komast að því að það er rosalega erfitt að fara í sturtu þegar sturtan er í pinkulitlu gluggalausu herbergi og ljósið bilar. Ljósið semsagt datt út í eldúsinu, sturtunni og klósettinu í nokkra daga. Það var mjög þægilegt að geta þvegið á sér hárið í gær. Íííp. ok það var könguló að klifra yfir tölvuskjáinn, djöfull brá mér.

Anywho komið sofutími.

Hugrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 12:43:57 / hugruni

Panick attack

Ég held að rafmagnssnúran fyrir tölvuna mína sé eitthvað á móti mér eða London eða eitthvað. Ég þurfti að kaupa nýjan adapter í Desember af því minn var að liðast í sundur og núna dó sá sami adapter. Vá hvað ég var pirruð. Það bara slökknaði á honum. Svo fór ég í dag og ætlaði að gá hvort ég gæti keypt nýjan. Kíkti í fjórar búðir og hvergi var selt Dell. Mér var sagt á einum stað að þeir væru bara með netverslun, hvergi annarsstaðar. En á leiðinni sá ég Computer fare og þar var verið að selja Dell og tvær konur þær gátu reddað mér nýjum. Ég var næstum búin að fá panick attack. Farin að hugsa hvort ég gæti fengið mömmu til að kaupa nýjan heima og senda mér hann í hraðpósti. En það er allt í góðu núna. Er í tölvunni skiluru.

Hitti Kollu loksins á fimmtudaginn. Ákvað að vera góð og bauð henni út að borða. Fórum á Garfunkels. Alltaf góður matur þar. Ákváðum svo að labba aðeins um og fórum framhjá Avenue Q leikhúsinu 10 mín í 8. Þá fékk ég þá hugdettu að gá hvort það væru lausir ódýrir miðar. Og viti menn. Tveir miðar á 10 pund hver. Frekar léleg sæti. En svo voru svo mörg sæti laus að við færðum okkur til. Kostaði jafn mikið og að fara í bíó. I love London.

Ok þarf að skreppa í Witleys og kaupa dót handa systrunum.

Hugrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 15:28:20 / hugruni

Alone again

Well hello folks. Til að byrja með skal ég leiðrétta það að ég hafi verið handtekinn og svoleiðis. Ég var pínulítið að búa það til fyrir Dóru. Þannig ég var ekki drukkinn og var ekki að rífast við lögguna. Lets call it april fools. :lol:

Anyway mamma kom í heimsókn á miðvikudaginn. Alveg heilum degi fyrr. Missti af fundinum sem hún var að fara á í París af því SAS var í verkfalli þannig hún kom snemma til mín í staðinn. Gerðum ekkert svakalega merkilegt fórum í smá verslunarleiðangur eins og vanalega þegar fólk kemur í heimsókn. Skelltum okkur svo á Wicked, alltaf gaman að fara í leikhús. Núna þarf ég bara að sjá Lord of the Rings söngleikinn og þá er ég sett.

Hún fór svo á laugardags morguninn þannig ég eyddi það sem eftir var helginni í að lesa. Rosa spennandi ekki satt. Jæja verð að hlaupa.

Hugrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 19:47:45 / hugruni

A light summers day

Vá hvað það er mikill munur á þremur vikum. Ég fór úr léttum vetri yfir í mitt sumar. Það er komið ekkert smá gott veður, trén eru öll orðin græn og fólk situr fyrir utan barina með bjórglas. Og eins og Dóra sagði mér að gera þá varð ég drukkin um hádegið, reif kjaft við lögguna og var handtekin, var að koma heim og ákvað að skrifa blogg.

Ú mamma þegar þú kemur út nenniru að koma með brúnu flipp flopps. Þeir ættu að vera undir borði og þú ættir að pakka sumarfötum. The weather is very, very nice. Hlakka ekki til að sitja inní skólastofu. Ætli ég þurfi ekki að kaupa mér viftu bráðlega. Spurning...

Hugrún


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 14:44:12 / hugruni

Sumarið er komið

Jæja þá er maður komin aftur út til London. Fer beint úr rigningunni í sólina. Allir hérna eru komnir í stuttbuxur og flipp flopp. Þá man ég það ég gleymdi mínum, djöfull. Ekki það ferðin gekk ágætlega, finnst samt rosalega leiðinlegt að ferðast ein. Allt búið að breytast í Leifsstöðinni einu sinni enn. Þetta er eins og nýr flugvöllur í hvert skipti sem maður kemur þangað. Svo var svo mikið ryk í herberginu mínu þegar ég kom inn að ég hnerraði í svona 10 mínútur. Þannig núna er ég búin að þrifa og ganga frá öllu dótinu mínu. Verst að ég þarf að ryksuga og það er bara hægt að fá þær lánaðar á virkum dögum. Eh redda því í vikunni.

Verð víst ekki ein lengi þar sem mamma kemur á miðvikudaginn í smá heimsókn. Fær að sofa á gólfinu mínu. Rosa spennandi. ok læt vita þegar ég er búin að gera eitthvað meira af mér.

Hugrún


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 17:50:52 / hugruni

Ég nenni ekki að pakka

Ég kem heim á morgun, Jeiiiiiiii. Ég er búin að vera að fresta því að byrja að pakka, finnst það alveg fáránlega leiðinlegt. Ætli ég verði ekki að fara að byrja núna, vona að ég komi öllu dótinu fyrir. Er alveg óvart með pínulítið mikið af DVD diskum sem taka svolítið pláss. Búin að vera dugleg að læra. Laumaðist samt á Avenue Q á þriðjudaginn. Snilldar leikrit. Var reyndar svoldið fúl, einn brúðugaurinn hvarf í miðjum fyrri hlutanum og annar kom í staðinn. Hann var reyndar nokkuð góður þannig það var allt í lagi.

Ok ætla að fara að pakka... nenni ekki

Hugrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 23:31:51 / hugruni

Molar

Hei pæling. Þegar maður kaupir nammi sem er með nokkrar bragðtegundir, af hverju er alltaf mest af þeim sem er verst á bragðið. T.d. ég var að kaupa brjóstsykurs polo og það er alltaf mest af fjólubláu molunum sem eru verstir á bragðið...

Annars byrjaði sumartíminn í dag. Það var mjög skrítið þegar maður hélt að klukkan væri hálf eitt þá var hún bara allt í einu hálf tvö. Mjög skrítið, eitthvað sem maður er ekki vanur heima. Niðurtalningin komin niður í fimm daga, bráðum get ég sagt á morgun kem ég heim á morgun. Ok kafnaði næstum því á munnvatni, man a live þetta var óþægilegt. þarf að fara einhverntíman í vikunni og kaupa allt á listanum sem ég er komin með. Fun

Hugrún


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 20:39:15 / hugruni

Kem heim eftir viku

Jei ég kem heim eftir nákvæmlega eina viku, akkúrat núna væri ég á flugvellinum á leiðinni inn í flugvélina. Búú, langar heim en mér finnst alveg hræðilega leiðinlegt að ferðast ein. Seinasti skóladagurinn á þessari önn var í dag, er búin að vera dugleg þessa viku að læra, ætla að vera súper dugleg í næstu viku svo ég þurfi ekki að gera mikið heima.

Hárið mitt er að gera mig brjálaða. Þannig eitt af því fyrsta sem ég geri er að fara í klippingu, hef ekki verið með svona sítt ár síðan ég var 13. ok hef nákvæmlega ekkert meira að segja, ekkert mikið búið að vera að gerast sem er hægt að segja frá.

Hugrún


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 21:22:47 / hugruni

Happy St. Patricks Day

Brjálaði írski drykkjudagurinn er í dag. Ég vona að allir hafi munað eftir því að vera í grænu í dag. Ég mundi eftir því, reyndar svoldið erfitt að gleyma því hér. Hef aldrei séð jafn mikinn Guiness á einum degi. Smakkaði meira að segja Guiness. I don't like it. Ok mér finnst enginn bjór góður. Það var horft mjög skringilega á mann þegar maður pantaði eitthvað annað en bjór.

Fór að versla í dag. Fann gallbuxur. Jei for me. Hef heil tvö pör núna. Hef ekki átt svona margar síðan ever held ég. Var með Nadine en hún stakk mig af til að fara á date þannig ég fór snemma heim. Nennti ekki að vera ein með fullt af drukknum Bretum. Var líka búin að lofa Andrea að fara með honum á National Galleri á morgun. Ekki gaman að vera þunnur þá.  

Er farin að hlakka rosalega til að koma heim. Alminnilegar heimatilbúnar máltíðir og svoleiðis. Hlakka náttúrulega líka til að sjá fjölskylduna. Mamma og Pabbi búin að panta sumarbústað um páskana. Verð að muna að finna mér eitthvað föndur til að hafa með. Ú og niðurteljarinn minn er bilaður þannig ég skal segja það núna. 13 dagar þangað til ég kem heim.

Hugrún


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 21:19:35 / hugruni

Ding Ding Ding... Ice cream man, Ice cream man

Það er alvöru ísbíll sem er farinn að keyra hérna framhjá á hverjum degi, með alvöru, mjög háværu lagi og öllu saman. Veit ekki alveg af hverju hann er að byrja núna, það er ekki eins og það sé hitabylgja í gangi eða neitt svoleiðis. Ég meina come on það er rétt svo mars.

Ég fór á bar í gær. Ég komst að því að fólk notar í alvörunni mjög lame pick up lines. Ok does wonders for your confidence. En það er soldið erfitt að halda straight face þegar mjög asnalegar koma fram. Eins og Where did a beautiful smile like yours come from? tíhíhí. Svo fer maður aftur að borðinu sínu og segir öllum frá því, we laughed.

Ú ég heyrði þennan brandara í gær: Two cows are standing in a field, one cow looks at the other and says, ‘Have you heard about that new outbreak of mad cow disease?’ The other says ‘Yes’. The first says, ‘Well, aren’t you worried?’ The second says, ‘Why should I be? I’m a duck!’ :lol:

Hugrún


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagsetning
29. janúar 2012
P�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1766 dögum